Frjálsíþróttaráð HSÞ stóð fyrir sólarhrings æfingabúðum í frjálsum íþróttum á Þórshöfn dagana 16.-17. janúar. Við vorum 9 sem lögðum af stað frá Laugum með bíl frá Fjallasýn, 5 bættust við á Húsavík og 2 i Kelduhverfi. Ferðin austur gekk vel og fengum við góðar móttökur á Þórshöfn. Á Þórshöfn er stórt og mikið íþróttahús sem við fengum afnot af en gistingin var í félagsheimilinu sem er rétt við íþróttahúsið. Fyrsta æfingin var kl. 17 og voru það Bjargey, Hlynur, Eyþór og Unnar elstu iðkendur okkar sem sáu um þá æfingu í fjarveru Bróa. Mætingin var mjög góð en 43 einstaklingar voru í allt mættir. Eftir æfingu skelltu krakkarnir sér í sund, ísbað og heitan pott áður en farið var að borða. Ísfélagið á Þórshöfn og frjálsíþróttaráð buðu upp á pizzu og UMFL bauð upp á gos með. Eftir mikla pizzu veislu var kvöldvaka. Farið var í spurningakeppni, sýnd voru ýmiss frumsamin skemmtiatriði og svo var frjáls tími. ULMF bauð líka upp á popp á kvöldvökunni. Um 30 manns gistu í félagsheimilinu, bæði gestir og heimamenn.
Klukkan níu á laugardagsmorgunn var morgumatur en nauðsynlegt er að borða vel og ekki rétt fyrir æfingu. Iðkendur skelltu sér í fótbolta fyrir æfingu og var skipt í lið heimamenn á móti gestum. Heimamenn unnu. Fyrri æfing dagsins var kl. 10 og var Brói þjálfari þá mættur á Þórshöfn. Brói lék við hvern sinn fingur enda taldi hann sig ekki hafa haft svona marga á æfingu í 20-30 ár. Það var glatt á hjalla og ýmsar æfingar í boði. Brói útskýrði vel tilgang æfinga og sagði að nauðsynlegt væri að gera alls konar æfingar til að samhæfa huga og líkama. Kapítóla og Ásdís þjálfarar á Þórshöfn aðstoðuðu við þjálfun sem og foreldrar og aðrir sjálfboðaliðar. Eftir æfingu var borðað nesti og ávextir sem UMFL gaf. Hvíldartími tók við eftir mat sem var m.a. notaður í að ganga frá upp í félagsheimili. En nauðsynlegt er líka að kunna að hvíla líkamann milli átaka. Eitthvað fannst krökkunum þó hvíldartíminn vera langur og voru þau fljótlega farin í feluleik og svo í fótbolta aftur. Þá unnu gestir. Í upphafi seinni æfingar var tekinn hópmynd. Brói lét krakkana fara í hraðaaukningar, drillur og styrktaræfingar. Minnti á að nota vel hendur til að halda jafnvægi. Eftir góðar teygjur í lok æfingar fóru krakkarnir svo í sund eftir æfingu. Áður en við fórum heim var reynt að klára nesti, og ávexti.
Óhætt er að segja að allt hafi gengið upp þennan sólarhring. Iðkendur eiga hrós skilið fyrir frábæra frammistöðu hvort sem var á æfingum eða utan vallar. Ævinlega kurteis og prúð. Það var reglulega gaman að sjá alla þessa hæfileikaríku krakka saman og vonandi sjáum við til þeirra flestra í framtíðinni.
En af hverju erum við að hafa svona æfingabúðir? Jú það er nauðsynlegt að brydda upp á ýmsum uppákomum fyrir iðkendur. Starfssvæði HSÞ er stórt og æfðar eru frjálsar íþróttir á þremur stöðum á svæðinu. Það er gaman fyrir krakkana að hittast og kynnast líka utan æfinga og keppni.
Þökkum UMFL kærlega fyrir góðar móttökur og gott skipulag.
Dagatal frjálsíþróttaráðs kemur úr prentun í vikulok. Það er von okkar að sem flestir sjái sér fært að greiða fyrir dagatalið og styrkja þannig iðkendur okkar. Fram undan eru fjölmörg íþróttamót og flest þeirra eru í Reykjavík.