Opið fyrir skráningu á sumarleika HSÞ – skráningarfrestur til 3. júní
Sumarleikar HSÞ fara fram helgina 5. – 7. júní næstkomandi á íþróttavellinum á Laugum í Reykjadal. Keppt verður í aldursflokkum 9 ára og yngri, 10-11 ára, 12-13 ára, 14-15 ára, 16-17 ára og 18 ára og eldri. Kynjaskipt er í öllum flokkum nema hjá 9 ára og yngri þar sem keppt verður í fjölþraut. Allir keppendur í flokkum 15 ára og yngri fá 4 tilraunir í köstum og stökkum en í flokkum 16 ára og eldri eru 3 köst/stökk auk 8 manna úrslita. Engin úrslitahlaup verða hlaupin í neinum flokkum, tímar gilda.
Skráning keppenda fer fram í Roster Athletics og lýkur skráningu þriðjudagskvöldið 3. júní klukkan 22:00. Ekki verður hægt að skrá sig á staðnum.
Skráningargjald er 3.000 kr. fyrir 9 ára og yngri. 5.000 kr. fyrir 10 ára og eldri óháð greinafjölda. Greitt er í gegnum Roster við skráningu.
Drög að tímaseðli er að finna í Roster, endanlegur tímaseðill verður klár á fimmtudagskvöldinu um kl. 20.
Tjaldsvæði er við hliðina á vellinum, greiða þarf sérstaklega fyrir það sem og rafmagn. Tjaldsvæðið er á vegum einkaaðil, https://reisa.is/laugar
Nánari upplýsingar veitir Gunnhildur Hinriksdóttir, á netfangi ghinriks@gmail.com eða í síma 694-5244.
HSÞ hlakkar til að taka á móti ykkur á Laugavelli í júní!
