Sumarleikar HSÞ haldnir í sumarblíðu 5. - 7. júní
Sumarleikar HSÞ fóru fram daganna 5. – 7. júní síðastliðinn. Mótið, sem er haldið á hverju sumri hefur fest sig í sessi sem frjálsíþróttamót fjölgreinarfélaga á svæðinu. Mótið hefur einnig verið vel sótt af félögum utan aðildarsvæðis HSÞ og komu keppendur á mótið úr öllum landshlutum.
Alls voru um 130 keppendur skráðir til leiks í flokki 11 ára og eldri og 30 iðkendur í fjörþraut 10 ára og yngri. Veður var mjög gott alla keppnisdaga, nokkuð stillt, sól og 15 stiga hiti.
Mótstjóri og yfirdómari var Gunnhildur Hinriksdóttir, en annað starfsfólk sumarleikana voru sjálfboðaliðar frá Ungmennafélaginu Eflingu og íþrótta og ungmennafélaginu Mývetningi.
HSÞ þakkar keppendum og starfsfólki kærlega fyrir komuna á mótið og vonast til að sjá sem flesta aftur á næsta ári!


