Reglugerðir HSÞ
Verkefna- og styrktarsjóður HSÞ
Hlekkur á Vinnuviðmið Verkefna- og styrktarsjóðs HSÞ 2023
- Sjóðurinn heitir Verkefna- og styrktarsjóður HSÞ og var stofnaður á ársþingi HSÞ 2021 með stofnframlagi þáverandi innistæða Afreksmanna-, Aksturs- og Fræðslusjóðs HSÞ.
- Tilgangur sjóðsins er að styðja við og efla íþrótta- og félagsstarf á sambandssvæði Héraðssambands Þingeyinga.
- Stjórn sjóðsins er skipuð formanni, gjaldkera og ritara HSÞ. Hlutverk hennar er að gera tillögu að úthlutun fjár úr sjóðnum og fylgjast með nýtingu styrkja.
- Tekjur sjóðsins eru:
-
- Ákveðið hlutfall af óskiptum lottótekjum samkvæmt reglugerð um skiptingu á lottótekjum sambandsins.
- Frjáls framlög og söfnunarfé.
-
- Markmið sjóðsins er m.a. að styrkja eftirfarandi:
-
- Verkefni sem styðja afreksíþróttafólk í að sækja sér þjálfun eða taka þátt í mótum sem eru viðbót við reglubundna þjálfun eða keppni.
- Þátttöku þjálfara, starfsfólks og stjórna í námskeiðum, ráðstefnum eða fundum sem er íþróttalífi og félagsstarfi í héraði til bóta.
- Námskeiðahaldi aðildarfélaga og sérráða fyrir iðkendur, þjálfara, dómara eða sjálfboðaliða. Skilyrði er að opið sé fyrir þátttöku frá öllum aðildarfélögum HSÞ.
- Aksturskostnað vegna þátttöku barna og unglinga, 18 ára og yngri, í skipulögðum íþróttaæfingum á vegum aðildarfélaga HSÞ.
- Nýjungar og sérstök verkefni.
-
Stjórn sjóðsins skal setja sér vinnureglur vegna úthlutunar styrkja og ákveður styrkupphæðir hverju sinni, þ.m.t. hámarksupphæðir til einstaklinga/hópa og fjölda styrkja til sama einstaklings/hóps/verkefnis innan sama árs.
- Úthlutað er úr sjóðnum tvisvar sinnum á ári og skulu umsóknir berast fyrir 15. maí vegna fyrri úthlutunar og fyrir 15. nóvember vegna seinni úthlutunar. Heimilt er að veita úr sjóðnum við fyrri úthlutun 50% af því fé sem í honum er ásamt 50% af tekjuafgangi síðasta árs og við síðari úthlutun því fjármagni sem eftir er í sjóðnum. Styrkupphæðir fara eftir fjármagnsgetu sjóðsins.
- Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga HSÞ geta sótt um styrk úr sjóðnum, sérráð og stjórnir aðildarfélaga HSÞ. Sjóðurinn styrkir eingöngu þá sem iðka/þjálfa íþrótt sína og/eða keppa og starfa undir merkjum HSÞ og aðildarfélaga þess.
- Umsóknum skal skilað til skrifstofu HSÞ á þar til gerðu eyðublaði þar sem fram kemur m.a.: Nafn félags; nafn umsækjanda/ábyrgðarmanns, símanúmer, netfang og reikningsupplýsingar; heiti verkefnis og lýsing á verkefninu sem sótt er um; fjármögnun og aðrir sjóðir sem sótt er í; fyrirhuguð ráðstöfun styrks og upphæð sem sótt er um ásamt fylgiskjölum.
Sjóðsstjórn áskilur sér rétt til þess að afla sér nánari upplýsinga en þeirra sem fram koma á umsóknareyðublaði s.s. leita umsagnar annarra aðila og krefjast staðfestingar á verkefninu t.d. með afritum af reikningum og kvittunum.
- Styrkþegar skulu skila stuttri greinargerð um framgang verkefnisins að því loknu.
- Sjóðsstjórn forgangsraðar umsóknum og metur hverja til samþykktar eða synjunar og skal á hverju ársþingi HSÞ gera grein fyrir styrkveitingum úr sjóðnum. Sjóðsstjórn ber ekki að rökstyðja tillögur sínar.
- Reglugerð þessi tekur gildi þegar ársþing HSÞ hefur samþykkt hana.
Breytingar samþykktar á ársþingi HSÞ haldið á Grenivík þann 26. febrúar 2023.
Lottóreglugerð Héraðssambands Þingeyinga
Lottótekjurnar skiptast þannig:
- 5% til verkefna- og styrktarsjóðs HSÞ
- 20% til HSÞ
- 75% til aðildarfélaga HSÞ skv. eftirfarandi skiptingu:
- 15% eftir mætingu á ársþing í hlutfalli við heildarfjölda mættra þingfulltrúa
- 70% eftir iðkendatali 6-17 ára
- 15% eftir fjölda félagsmanna, 18 ára og eldri
Forsendur fyrir úthlutun skv. c)-lið
- Fulltrúi aðildarfélags mæti á ársþing HSÞ.
- Félag skili skriflegri skýrslu til HSÞ, sem birtist í ársskýrslu HSÞ, þar sem starfi félagsins síðastliðið starfsár er lýst.
- Félag skili starfsskýrslu í félagakerfi ÍSÍ og UMFÍ fyrir 15. apríl ár hvert.
Uppfylli félag ekki þessar forsendur fær félagið ekki úthlutað úr lottó. Hlutur félagsins rennur þá til annarra aðildarfélaga skv. úthlutunarreglum í c)-lið. Hafi félag staðið undir forsendum 1 og 2 en ekki 3 er stjórn sambandsins heimilt að fresta lottógreiðslum til félagsins þar til félagið hefur staðið skil á starfsskýrslunni. Hafi félagið ekki enn skilað inn starfsskýrslum þann 1. desember skal hlutur þess renna í aðalsjóð HSÞ.
Samþykkt á ársþingi HSÞ í Þórsveri á Þórshöfn þann 20. mars 2021.
Reglugerð fyrir kjör íþróttamanns og veitingu hvatningarverðlauna HSÞ
Kjör íþróttamanns HSÞ
- Íþróttanefndir, sérráð og aðildarfélög HSÞ eiga rétt á að skila tilnefningu eins einstaklings eða pars innan hverrar greinar í kjör íþróttamanns HSÞ. Tilnefningar þurfa að berast til stjórnar HSÞ eigi síðar en 1. febrúar ásamt mynd af viðkomandi. Með tilnefningu fylgi greinargerð um íþróttalegan árangur á árinu sem verðskuldar slíka viðurkenningu. Líta skal til þátttöku og afreka á innlendum og erlendum vettvangi s.s. alþjóðlegum mótum, Íslandsmótum, héraðsmótum, innanfélagsmótum og meta, en einnig skal líta til framfara, ástundunar og fyrirmyndarframkomu. Skilyrði fyrir tilnefningu er að íþróttamaður hafi verið löglegur keppandi í aðildarfélagi HSÞ þegar árangur náðist, og hafi að lágmarki verið á sextánda aldursári.
Hvatningarverðlaun HSÞ
- Íþróttanefndir, sérráð og aðildarfélög HSÞ eiga rétt á að skila inn tilnefningum eins einstaklings eða pars sem hlýtur hvatningarverðlaun HSÞ. Tilnefningar þurfa að berast til stjórnar HSÞ eigi síðar en 1. febrúar ásamt mynd af viðkomandi. Með tilnefningu fylgi greinargerð um íþróttalegan árangur á árinu sem verðskuldar slíka viðurkenningu. Líta skal til þátttöku og afreka á innlendum og erlendum vettvangi s.s. alþjóðlegum mótum, Íslandsmótum, héraðsmótum, innanfélagsmótum og meta, en einnig skal líta til framfara, ástundunar og fyrirmyndarframkomu. Miðað er við börn og unglinga sem hljóti þessi verðlaun enda einstaklingurinn löglegur keppandi í aðildarfélagi HSÞ.
Heimild stjórnar HSÞ
- Skili íþróttanefndir eða sérráð ekki tilnefningu á réttum tíma er stjórn HSÞ heimilt að tilnefna íþróttamann í viðkomandi grein, þannig að hann komi til álita við kjörið.
Kosningar
- Stjórn HSÞ skal fara yfir allar tilnefningar í kjöri íþróttamanns ársins, hvort þær uppfylli skilyrði 1.gr. og velja íþróttamann hverrar greinar. Verða þessir íþróttamenn í kjöri til íþróttamanns HSÞ. Stjórn HSÞ skal jafnframt meta tillögur að hvatningarverðlaunum HSÞ og veita þær viðurkenningar uppfylli þær skilyrði 2.gr.
- Þeir sem hafa atkvæðisrétt í kjörinu eru:
- Stjórnarfólk HSÞ hefur eitt atkvæði hvert, varamenn taka sæti aðalmanna sé talin þörf á því, t.d. vegna hagsmunaárekstra eða annars.
- Stjórnir aðildarfélaga og stjórnir deilda þeirra hafa eitt atkvæði hver stjórn.
- Að auki hefur stjórn HSÞ heimild til að leita til allt að 10 aðila til að taka þátt í kosningunni sé talin þörf á því.
- Þeir sem atkvæðisrétt hafa skulu raða 10 af tilnefndum íþróttamönnum upp í röð þannig að nafn þess sem er númer eitt í kjörinu er efst o.s.frv. Síðan skal veita stig eftir sætum þannig að fyrsta sæti gefur 12 stig, annað sæti, 10 stig, þriðja sæti 8 stig, fjórða sæti 7 stig, fimmta sæti 6 stig o.s.frv. þannig að 10. sæti gefur 1 stig.
Stigahæsti einstaklingurinn hlýtur viðurkenninguna Íþróttamaður HSÞ. Séu tveir eða fleiri jafnir skal sá ofar sem oftar er valinn í fyrsta sæti, ef þá er enn jafnt skal sá ofar sem oftar er valinn í annað sæti o.s.frv.
- Formleg útnefning íþróttamanns HSÞ fer fram á ársþingi, þar sem íþróttamenn hverrar greinar hljóta einnig viðurkenningu.
- gr. Með reglugerð þessari falla eldri reglugerðir úr gildi.
Breytingar samþykktar á ársþingi HSÞ á Grenivík 26. febrúar 2023
Reglugerð um heiðursmerki HSÞ
1. grein
Stjórn HSÞ getur, við sérstök tækifæri s.s. ársþing HSÞ, aðalfundi félaga eða stórafmæli, veitt einstaklingum heiðursviðurkenningar fyrir störf sín í þágu íþróttahreyfingarinnar á svæðinu.
2. grein
Viðurkenningar HSÞ eru Silfurmerki HSÞ og Gullmerki HSÞ. Einnig er heimilt að kjósa Heiðursfélaga HSÞ.
3. grein
Um viðurkenningarnar:
-
-
-
- Silfurmerki HSÞ er veitt þeim einstaklingum sem unnið hafa gott og mikið starf í þágu einstakra aðildarfélaga eða héraðssambandsins í heild. Merkið skal jafnframt vera hvatning til áframhaldandi góðra starfa í þágu íþróttahreyfingarinnar.
- Gullmerki HSÞ er veitt þeim einstaklingum sem hafa sinnt skipulags-, stjórnar- eða þjónustustörfum fyrir sambandið eða aðildarfélögin um lengri tíma svo eftir er tekið. Gullmerkishafi skal alla jafna áður hafa hlotið silfurmerki HSÞ.
- Heiðursfélaga er hægt að tilnefna hafi einstaklingur sýnt HSÞ óvenju mikla þjónustu um langt árabil.
-
-
4. grein
Tillögurétt að heiðursviðurkenningum HSÞ hafa stjórnarmenn HSÞ, stjórnir aðildarfélaga HSÞ og stjórnir ráða eða nefnda á vegum HSÞ. Tillögum skal fylgja nákvæm lýsing á störfum viðkomandi og starfsferill innan íþróttahreyfingarinnar.
5. grein
Skrifstofa HSÞ skal skrá allar viðurkenningar HSÞ og birta nöfn merkjahafa í ársskýrslu HSÞ.
Samþykkt á ársþingi HSÞ í Þórsveri á Þórshöfn þann 20. mars 2021.