Íþrótta-og tómstundastyrkir fyrir börn af efnaminni heimilum

Vakin er athygli á íþrótta- og tómstundastyrkjum fyrir grunnskólabörn sem búa á heimilum þar sem heildartekjur framfærenda, einstaklings, hjóna eða sambúðarfólks, voru lægri en 740.000 kr. að meðaltali á mánuði á tímabilinu mars – júlí árið 2020. Um er að ræða sérstakt verkefni félags- og barnamálaráðherra í kjölfar Covid-19 faraldursins.

Styrkurinn er veittur vegna barna sem fædd eru á árunum 2005-2014 og er að hámarki 45.000 krónur fyrir hvert barn sem stundar skipulagt tómstunda- og/eða íþróttastarf undir leiðsögn þjálfara eða leiðbeinanda. Athugið að hægt er að koma með kvittanir fyrir íþrótta- og tómstundastarfi sem greitt var fyrir í upphafi árs, eða frá hausti 2020.

Hægt er að nálgast frekari upplýsingar og kanna rétt sinn til styrksins með því að skrá sig inn á island.is